Tindastóll tekur á móti Reyni S. í kvöld
Karlalið meistaraflokksliðs Tindastóls tekur á móti Reyni S. á Sauðárkróksvelli, í þriðju deildinni í kvöld klukkan 19:00.
Tindastóll er á blússandi siglingu en liðið hefur sigrað 10. leiki í röð á mótinu og trónir í efsta sæti riðilsins. Fast á hælar Stólanna eru Víðir með 27. stig.
Reynis S. hefur unnið sjö leiki af síðustu átta á mótinu og eru í fjórða sæti deildarinnar með 18 stig. Liðin mættust í maí síðastliðnum en þá stóðu Stólarnir uppi sem sigurvegarar með tvö mörk gegn einu.