Tindatríó og Sveinn Arnar á Norðurlandi
Feðgarnir í Tindatríóinu, þeir Atli Guðlaugsson, Bjarni Atlason og Guðlaugur Atlason, ásamt Sveini Arnari Sæmundssyni píanóleikara og söngvara, leggja land undir fót og skemmta Norðlendingum um næstu helgi.
Föstudaginn 2. október verða þeir í Félagsheimilinu á Hvammstanga kl. 20.00 og laugardaginn 3. október verða þeir í Tónlistarhúsinu Laugarborg í Eyjafjarðarsveit kl. 15.00 og í Kakalaskála í Skagafirði kl. 20.30. Efnisskráin spannar vítt svið og verður gleðin í fyrirrúmi.
Hér má sjá sýnishorn af flytjendum:
/fréttatilkynning