Tískusýning við Minjahúsið 3. júlí
Glæsileg tískusýning verður haldin við Minjahúsið á Sauðárkróki laugardaginn 3. Júlí klukkan 13:00 en þar munu stórglæsileg módel í hinum ýmsu stærðum og gerðum sýna föt frá Skagafjarðardeild Rauða kross Íslands.
Fatamarkaður verður í Rauðakrosshúsinu sama dag frá klukkan 12:00 til 16:00. Feykir skorar á hugmyndaríka unga og upprennandi hönnuði að láta sig ekki vanta skoða gömul klæði, uppgötva möguleikana í þeim, gera góð kaup og fara síðan og skemmta sér konunglega við saumavélina.