Umferðaóhapp í Blönduhlíð

Fjögur ungmenni sluppu með skrekkinn þegar bifreið þeirra fór út af veginum í Blönduhlíð í gær.
Lögregla fór á staðinn ásamt sjúkraliði og voru ungmennin öll flutt á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki til skoðunar en meiðsli þeirra eru ekki talin alvarleg. Bifreiðin er talin ónýt.
Heimild; logreglansaudarkroki.is
