Uppskeruhátíð fyrir sjálfboðaliða í kvöld
Stjórn hestamannafélagsins Skagfirðings býður öllum sjálfboðaliðum sem störfuðu á úrtökumótinu á Hólum 11.-12. júní sl. og þeim sem störfuðu í sjálfboðastarfi fyrir Landsmót á Hólum á uppskeruhátíð í kvöld, föstudagskvöldið 26. ágúst kl. 18 í Tjarnarbæ.
„Aðrir félagsmenn eru að sjálfsögðu líka velkomnir. Hlökkum til að hitta þessa hörkuduglegu félagsmenn og eiga góða kvöldstund saman,“ segir í tilkynningu frá stjórn Skagfirðings.