Útgáfuhóf Lifandi landslags

Á föstudaginn kemur verður haldið í Miðgarði útgáfuhóf til að kynna og fanga útgáfu smáforritsins Lifandi landslags sem Sóley Björk Guðmundsdóttir hefur látið gera. Lummudagar eru haldnir hátíðlegir i Skagafirði þessa helgi og því tilvalið að kynna forritið fyrir gestum og gangandi.

Forritinu er ætlað að gera ferðalög um Skagafjörð enn áhugaverðari, þar sem sögur leynast undir öðrum hverjum steini.

Þar má finna þjóðsögur sem segja frá tröllum, draugum og hugrökkum bóndasonum, sem og sögum af Gretti og hetjum Sturlungaaldar, samstarfi við verkefnið Á Sturlungaslóð. Forritið stendur öllum til boða að kostnaðarlausu, enda er tilgangurinn að kynna Skagafjörð.

Lifandi landslag staðsetur snjalltækið, og kynnir notandann fyrir öllum þeim sögum sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða í næsta nágrenni. Landslagið lifnar við með hjálp sagna sem eru allar tengdar sögustöðum, og notandinn hefur aðeins aðgang að þeim ef hann ert nærri.

Í leiðinni má kynna sér alla helstu þjónustu sem er í boði í firðinum, allt frá veitingastöðum til flúðasiglinga, hestaferða og fleira. Smáforritið gæti því orðið það eina sem fólk þarf á leiðs sinni um Skagafjörð.

Á síðasta fundi atvinnu,- menningar og kynningarmálanefndar Skagafjarðar var tekin tekin fyrir styrkbeiðni frá Sóleyju Björk Guðmundsdóttur vegna kynningar á verkefninu Lifandi landslags. Sótt er um styrk vegna kynningar á verkefninu og var samþykkt að veita kr. 250.000 til þess.

Fleiri fréttir