Útskrift skólahóps Ársala

Skólahópur Leikskólans Ársala á Sauðárkróki útskrifaðist með viðhöfn í dag að viðstöddum foreldrum, systkinum, ömmum og öfum. Árgangurinn, sem er óvenju fámennur með 21 nemanda, mun svo hefja grunnskólagöngu sína í Árskóla í haust.   

https://youtu.be/p0YCr5hXuZk

Við tilefnið tóku krakkarnir tóku nokkur lög við undirleik Önnu Jónu Guðmundsdóttur leikskólastjóra. Af söngatriðum loknum var hver nemandi kallaður upp og fékk afhent viðurkenningarskírteini og blóm frá leikskólastjóranum.

 

Fleiri fréttir