Veðurklúbburinn á Dalbæ spáir ágætu veðri á Fiskideginum mikla

Ágætis veður framundan
Ágætis veður framundan

Þriðjudaginn 2. ágúst 2016 komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar. Fundurinn hófst kl. 14:00. Fundarmenn voru 20 talsins, enda mikilvægt að vanda til veðurspár þar sem “Fiskidagurinn mikli” var að nálgast. Fundinum lauk kl. 14:30.

Að venju og svo sem við var að búast hafði síðasta veðurspá klúbbsins gengið ágætlega eftir og þó svo að klúppurinn hafi sleppt því að spá fyirr júlímánuð vegna sumarfría og ýmissa anna, hafði veður í þeim mánuði verið með ágætum. Þó svo að útlit og horfur hafi ekki verið sem bestar fyrir veður á Fiskidag þá voru klúbbfélagar á einu máli um að þann dag yrði ágætt veður, sem hentaði prýðilega til útihátíðahalda.

Nýtt tungl kviknaði einmitt þennan dag, þ.e. 2. ágúst   í NV. kl. 20:45. Veðurhorfur fyrir mánuðinn eru svipaðar og verið hefur. Þó voru klúbbfélagar á báðum áttum með ríkjandi vindáttir og samkomulag var um að gera ráð fyrir að vindur blésu líklega úr báðum áttum bæði suðlægar og norðlægar áttir, en þó ekki teljandi á sama tíma. Svo sem fram kom í spá fyrir júnímánuð er berjatíð með miklum ágætum.

 

Veðurvísa ágúst og september mánaðar.

 

Í ágúst slá menn engi

og börnin tína ber.

Í september fer söngfugl

og sumardýrðin þver.

 

Með Fiskidagskveðju,

Veðurklúbburinn á Dalbæ

Fleiri fréttir