Verji hluta af útvarpsgjaldi til ljósvakamiðils að eigin vali

Uppsögn aðstöðu RÚV á Sauðárkróki var tekin til umræðu á ný á 690. fundi byggðarráðs sl. fimmtudag. Málið var tekið fyrir að fundi byggðarráðs vikunni á undan og þá samþykkt bókun þess efnis að hörmuð væri sú ráðstöfun Ríkisútvarpsins að leggja niður starfstöð sína á Sauðárkróki. Greint var frá þessu á Feyki.is í síðustu viku.

Á fundinum sl. fimmtudag var lagður fram tölvupóstur frá Magnúsi Geir Þórðarsyni útvarpsstjóra vegna bókunar ráðsins á fyrrnefndum fundi og kemur þar fram að hann er tilbúinn til að hitta fulltrúa sveitarfélagsins vegna málsins. Byggðarráð samþykkti að fela sveitarstjóra að finna hentugan tíma fyrir fund með útvarpsstjóra.

Sigurjón Þórðarson lagði fram eftirfarandi bókun á fundinum:

„Í ljósi þess að útvarpsstjóri hefur tekið þá ákvörðun að leggja af alla starfsemi í Skagafirði, þá er rétt að beina því til þingmanna kjördæmisins að beita sér fyrir því að Skagfirðingum verði gert kleift að verja hluta af útvarpsgjaldi til ljósvakamiðils að eigin vali t.d. N4 sem hefur fjallað reglulega um þjóð- og menningarlíf í Skagafirði.“

Fleiri fréttir