Víða réttað um helgina
Víða á Norðurlandi vestra er réttað nú um helgina. Í Húnaþingi vestra var réttað í Hrútatungurétt og Miðfjarðarrétt á laugardainn. Í Austur-Húnavatnssýslu var réttað í Fellsrétt, Fossárrétt í Skagabyggð, Hlíðarrétt, Kjalarlandsrétt í Skagabyggð á laugardaginn en réttað var í Skrapatungurétt í gær, sunnudag.
Í Skagafirði var réttað í Unadalsrétt, Selnesrétt á Skaga og Skarðarétt í Gönguskörðum á laugardaginn en réttað var í Staðarrétt í gær, sunnudag.
Feykir hvetur lesendur til að senda myndir úr réttum, til birtingar í blaðinu eða á vefnum. Hægt er að senda þær á netfangið feykir@feykir.is og nauðsynlegt að fram komi úr hvaða réttum myndirnar eru og hver myndatökumaður er.