Víða vantar fólk til starfa
Athygli vekur hve fjölmörg störf eru auglýst laus til umsóknar á Norðurlandi vestra um þessar mundir, um er að ræða bæði framtíðarstörf og í sumarafleysingar. Í Feyki í dag er auglýst eftir rannsóknarmanni við sjávarlíftæknisetrið Biopol á Skagaströnd. Þá eru auglýst nokkur laus störf við lúxushótelið að Deplum í Fljótum, eins og greint var frá hér á Feyki.is í morgun.
Á Starfatorg.is er að finna upplýsingar um laus störf hjá ríkinu. Þar eru auglýstar 20 lausar stöður á Norðurlandi vestra, 13 á Sauðárkróki, 4 á Blönduósi og 3 á Hvammstanga. Flestar eru stöðurnar hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands en einnig hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga. Þá er jafnframt auglýst laus staða aðstoðarverslunarstjóra hjá Vínbúðinni Sauðárkróki.
Á HSN á Sauðárkróki og Blönduósi er m.a. auglýst eftir sérfræðilækni í heimilislækningum, lífeindafræðing, ljósmóður, sjúkraliðum, hjúkrunarfræðingum, hjúkrunarnema, ritara á rannsóknarstofu, móttökuritara, starfsmönnum í ræstingar og þvottahús, starfsmönnum í eldhús og í aðhlynningu.
Á HVE á Hvammstanga er auglýst eftir hjúkrunardeildarstjóra, læknaritara og aðstoðarmatráð.
Þá auglýsir Sveitarfélagið Skagafjörður líka eftir starfsfólki. Þrjár fastar stöður, þ.e. sálfræðingi, sundlaugaverði við Sundlaug Sauðárkróks og dagforeldri. Sömuleiðis 13 sumarstörf í frístunda- og íþróttamálum. Störfin sem um ræðir eru í íþróttahúsi, flokkstjórar vinnuskóla, á íþróttavelli, starfsmenn Sumar-Tím og í sundlaugum.
Í Sjónhorninu sem kom út í dag er fyrrnefnd auglýsing eftir starfsfólki á Depla, þá auglýsir ISS einnig eftir starfsfólki á Sauðárkróki og Varmahlíð. Fyrr í mánuðinum var óskað eftir starfsfólki á Verslunina Eyri og á Bláfell á Sauðárkróki.