Vilja hættumat fyrir Varmahlíð og hluta Sauðárkróks vegna aurskriðuhættu

Svona var staðan á skriðusvæðinu í Varmahlíð eftir viðgerðir fyrir verslunarmannahelgina. MYND: ÓAB
Svona var staðan á skriðusvæðinu í Varmahlíð eftir viðgerðir fyrir verslunarmannahelgina. MYND: ÓAB

Síðastliðið fimmtudagskvöld bauð Svf. Skagafjörður íbúum Varmahlíðar til fundar í Miðgarði vegna aðgerða í kjölfar aurskriða sem féllu á hús við Laugarveg seint í júní, þar sem betur fór en á horfðist.

Að sögn Sigfúsar Inga Sigfússonar, sveitarstjóra, var ágætlega mætt á fundinn en þar miðluðu fulltrúar sveitarfélagsins upplýsingum til íbúa um þær framkvæmdir sem þegar er búið að ráðast í vegna skriðanna og hvaða hugmyndir eru uppi á þessu stigi um frekari framkvæmdir.

„Einnig upplýstum við um beiðni sveitarfélagsins til umhverfisráðherra um gerð sérstaks hættumats fyrir Varmahlíð og hluta Sauðárkróks vegna aurskriðuhættu,“ sagði Sifús Ingi í samtali við Feyki. Hann sagði ennfremur að stefnt sé að öðrum íbúafundi þegar frekari upplýsingar liggja fyrir um hættumatið og þær tillögur að framkvæmdum sem lagðar verða til í kjölfar þess.

 

Fleiri fréttir