Vinnuhópar skipaðir um tillögur frá Capacent

Í vor var samþykkt á fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar Svf. Skagafjarðar að ráðast í gerð könnunar á búsetuskilyrðum í sveitarfélaginu þar sem m.a. yrði leitað skýringa á fólksfækkun á svæðinu. Úttektin var unnin af sérfræðingum frá Capacent og voru niðurstöðurnar kynntar á fjölmennum íbúafundi þann 3. september sl. Ákveðið var að skipa í vinnuhópa sem hafa það hlutverk að vinna úr tillögum skýrslunnar.
Könnunin var framkvæmd af Gallup í lok apríl og byrjun maí meðal brottfluttra Skagafirðinga undanfarin tvö ár. Sérfræðingar Capacent sem unnu úr niðurstöðunum greindu í fyrsta lagi hverjir væru núverandi styrkleikar Skagafjarðar og hins vegar hvaða þættir valda því að íbúum hefur fækkað eins og raun ber vitni. Úttektina í heild er að finna á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Ætlað að skila tillögum fyrir 15. október
Í lok úttektarinnar setja úttektaraðilar fram fimm tillögur og hefur atvinnu,-menningar- og kynningarmálanefnd lagt fram tilnefningar framboðanna í vinnuhópa sem hafa það hlutverk að vinna úr tillögunum, einn starfshóp um hverja tillögu. Hópunum er ætlað að skila tillögum sínum fyrir 15. október 2015 til nefndarinnar.
- Í tillögunum er í fyrsta lagi lagt til að sveitarfélagið leiði saman atvinnulíf, íbúa og menntastofnanir við að móta stefnu og framtíðarsýn um byggð og atvinnu.
- Í öðru lagi að sveitarfélagið og atvinnulífið í Skagafirði vinni saman að því að stofna fjárfestingarsjóð sem hefði þann tilgang að nýta margvísleg tækifæri til uppbyggingar og auðvelda aðgang að fjármagni til arðbærra verkefna.
- Þriðja tillagan var sú að áherslur sveitarfélagsins miði að því að laða að fjölskyldur til svæðisins með fjölskylduvænu umhverfi, þjónustu og fjölbreyttu atvinnulífi.
- Þá er lagt til að unnið verði að nánari greiningu á ímynd og stöðu Skagafjarðar, jafnt meðal íbúa svæðisins sem landsins í heild. Á þeim grunni yrði síðan unnið að því að kynna svæðið.
- Í fimmtu og síðustu tillögunni er lagt til að Sveitarfélagið Skagafjörður beiti sér fyrir samstilltu átaki og samræmingu við uppbyggingu, skipulag og þróun ferðaþjónustu. Til þess þurfi að auka samstarf og samræmingu.
Tilnefningarnar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar um hverjir skipa vinnuhópanna eru eftirfarandi og munu starfsmenn sveitarfélagsins kalla hópana saman:
Hópur 1: Mótun stefnu og framtíðarsýnar um byggð og atvinnu:
D: Bryndís Hallsdóttir
B: Viggó Jónsson
V: Einar Þorvaldsson
K: Hanna Þrúður Þórðardóttir
Starfsmaður: Laufey Kristín Skúladóttir
Hópur 2: Stofnun fjárfestingasjóðs fyrir Skagafjörð:
D: Ásmundur Pálmason
B: Bjarki Tryggvason
V: Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir
K: Sigurjón Þórðarson
Starfsmaður: Margeir Friðriksson
Hópur 3: Styrkingu þjónustu í Skagafirði:
D: Haraldur Þór Jóhannesson
B: Sigríður Magnúsdóttir
V: Steinunn Rósa Guðmundsdóttir
K: Jón G Jóhannesson
Starfsmaður: Herdís Sæmundardóttir
Hópur 4: Styrkingu ímyndar Skagafjarðar:
D: Gísli Sigurðsson
B: Hrund Pétursdóttir
V: Lilja Gunnlaugsdóttir
K: Helgi Thorarensen
Starfsmaður: Ásta Pálmadóttir
Hópur 5: Uppbyggingu, skipulag og þróun ferðaþjónustu:
D: Guðný Axelsdóttir
B: Þórdís Friðbjörnsdóttir
V: Björg Baldursdóttir
K: Guðrún Helgadóttir
Starfsmaður: Árni Egilsson