Vinnuhópur um framtíðaruppbyggingu íþróttahreyfingarinnar
Gunnar Þór Gestsson formaður Tindastóls og Ómar Bragi Stefánsson formaður knattspyrnudeildar mættu á fundi félags- og tómstundanefndar á dögunum kynntu áhuga á að fá að stofna vinnuhóp um framtíðaruppbyggingu starfs hreyfingarinnar.
Nefndin tók jákvætt í erindi þeirra félaga og samþykkti að frá Frístundasviði sitji íþróttafulltrúi í hópnum en að leita megi til Skipulags-og tæknisvið um upplýsingar. Aðalstjórn Tindastóls boðar fyrsta fund.