Vísindaferð nemenda Sólgarðaskóla

Fyrstu skóladagar nemenda Sólgarðaskóla í Fljótum voru notaðir fyrir útivistar- og grenndarkynningar, þar sem nemendur fóru meðal annars í fjallgöngu. Þá fóru þau einnig í vísindaferð í gær og heimsóttu Langhúsahverinn.
„Þar standa eitursvalir gaurar dag og nótt og bora sig hálfa leið niður að miðju jarðar, komnir 128 m. niður og bara rétt að byrja. Það er ekki nema fyrir harðmenni að vinna við þetta, og bara fyrir útvalda að heimsækja staðinn,“ segir á vef Grunnskólans austan Vatna.