Vodafone breytir fyrirkomulagi reikninga til fyrra horfs
Neytendasamtökunum hafa borist fjöldi ábendinga og kvartana frá neytendum síðustu vikurnar vegna breytinga Fjarskipta hf. (Vodafone) á útgáfu reikninga. Samkvæmt þeim kvörtunum sem samtökunum bárust þá virtist fyrirtækið hafa breytt gjalddaga og eindaga reikninga sinna þannig að neytendur sem fóru inn á heimabanka sinn um mánaðarmót sáu ekki reikning frá fyrirtækinu.
Í fréttatilkynningu frá Neytendasamtökunum segir að þar sem flestir neytendur greiði reikninga sína í gegnum heimabanka, við útborgun um mánaðarmót, urðu þessar breytingar á gjalddaga og eindaga reikninga Vodafone til þess að margir neytendur hreinlega gleymdu að greiða reikninga frá fyrirtækinu þar sem þeir birtust ekki í heimabankanum á sama tíma og aðrir reikningar.
Vodafone tilgreindi að umrædd breyting hafi verið gerð í því skyni að einfalda viðskiptavinum greiðslu reikninga sinna með því að sameina gjalddaga og eindaga þannig að gjalddagi, sem jafnframt er eindagi, yrði 15 dögum frá útgáfu reiknings. Þessi breyting á skilmálum hafi verið kynnt fyrir áskrifendum á símareikningi sem og á heimasíðu fyrirtækisins.
Ákveðið var að breyta fyrirkomulaginu aftur til fyrra horfs, þannig að eindagi reikninga verði 2. hvers mánaðar og gjalddagi sjö dögum fyrr. Í svari fyrirtækisins til Neytendasamtakanna kemur fram að „með þessum hætti verður tryggt að reikningar verða aðgengilegir og sýnilegir í netbönkum viðskiptavina fyrirtækisins um mánaðarmót og áður en kemur að eindaga, sbr. tilmæli Neytendasamtakanna þar um.