Frosthörkur geta gert lítillega vart við sig

Ekki er reiknað með miklum snjó en frosti og þá líklega hálku á vegum. Myndin er tekin í síðustu viku á Þverárfjallsvegi. Mynd : PF.
Ekki er reiknað með miklum snjó en frosti og þá líklega hálku á vegum. Myndin er tekin í síðustu viku á Þverárfjallsvegi. Mynd : PF.

Þriðjudaginn 7.  nóvember sl. komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar til að huga að veðurhorfum í þessum mánuði. Fundurinn hófst kl. 14:00 og voru fundarmenn sjö talsins og lauk honum kl. 14:30. Spágildi síðustu veðurspár, var að vanda vel viðunandi, að sögn veðurspámanna.

Nýtt tungl kviknar þann 18. nóvember í suðaustri kl. 11:42 og er það laugardagstungl. Þess má til gamans geta, að 18. nóvember er fæðingardagur Jóhanns heitins Daníelssonar, sem var virkur félagi í Veðurklúbbnum á Dalbæ og auk þess áhugamaður um tunglkomur og tunglsskin.

Reiknað er með að veðurfar í nóvember verði svipað og verið hefur, þó örlítið kaldara, en ekki reiknað með mikilli snjókomu. Vindáttir verða breytilegar. Samandregið má ætla að heilt yfir verði veður í nóvember ágætt, þó svo að frosthörkur geti lítillega gert vart við sig.

 Veðurvísa  okt. / nóv.

Í október hefst skólinn
að bjóða börnum heim.
Í nóvember er náttlangt
í norðurljósageim.

Með góðri kveðju,
Veðurklúbburinn á Dalbæ

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir