Tónleikar til heiðurs Stuðmönnum á Hvammstanga

Æft af krafti fyrir tónleika sem haldnir verða í Félagsheimilinu á Hvammstanga á skírdag. Myndir: Aldís Olga Jóhannesdóttir.
Æft af krafti fyrir tónleika sem haldnir verða í Félagsheimilinu á Hvammstanga á skírdag. Myndir: Aldís Olga Jóhannesdóttir.

Á skírdag mun Menningarfélag Húnaþings vestra, ásamt fríðu föruneyti tónlistarmanna úr héraðinu, standa fyrir heiðurstónleikum Stuðmanna í Félagsheimilinu Hvammstanga. Yfir 30 flytjendur munu stíga á stokk og flytja 20 lög Stuðmanna sem spanna 45 ára tónlistarsögu þeirra.

Flytjendur eru á öllum aldri og er aldursforsetinn 73 ára gamall. Popp- og rokkkórinn er meðal flytjenda og eru karlaraddir kórsins einnig í nokkrum öðrum lögum tónleikanna. Hafa æfingar staðið yfir síðan í mars. 

Miðasala fer fram á tix.is og er miðaverðið 3.500 kr. Aldurstakmark er 16 ára en yngri mega koma í fylgd með forráðamanni. Einnig er hægt að kaupa pakka sem inniheldur miða á tónleikana og ball með Ástarpungunum á Sjávarborg. Hefst ballið strax eftir tónleikana og kostar miðinn á báða viðburðina 5.500 kr.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af æfingum fyrir tónleikanna.
/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir