Alor og Straumlind í samstarf

Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastýra Alor og Símon Einarsson, framkvæmdastjóri Straumlindar, við undirritun samstarfssamnings. Aðsend mynd.
Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastýra Alor og Símon Einarsson, framkvæmdastjóri Straumlindar, við undirritun samstarfssamnings. Aðsend mynd.

Raforkusalinn Straumlind og nýsköpunarfyrirtækið Alor, sem stjórnað er af Skagfirðingum, hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf sem snýr að því að þróa lausnir í því skyni að bæta orkunýtingu rafmagns, jafna álag og selja hagkvæmt rafmagn til heimila landsins.

Í tilkynningu til fjölmiðla segir að frá árinu 2021 hafi Straumlind boðið Íslendingum að kaupa rafmagn á hagkvæmu verði og noti til þess eigið tölvukerfi, hannað með snjallmæla, sjálfvirkni og framtíðina í huga. Tölvukerfið gefur Straumlind sérstöðu á markaði og mikla aðlögunarhæfni og var fyrirtækið þar með fyrsti raforkusalinn til að sjálfvirknivæða nýskráningar og bjóða almennum notendum Ódýrara rafmagn á nóttunni. 

„Við hjá Straumlind teljum að íslensk heimili geti leikið stórt hlutverk í að nýta raforkukerfið betur. Betri nýting innviða minnkar þörf fyrir ótímabærar og dýrar fjárfestingar til að ráða við álagstoppa. Straumlind vinnur að kappi að því að vera besti valkostur heimilanna á raforkumarkaði bæði út frá verði og þróun á snjöllum lausnum. Í dag bjóðum við lægsta verðið á markaði, Ódýrara rafmagn á nóttunni og erum að þróa lausnir sem veita munu hinum almenna notanda upplýsingar og jákvæða hvata til að stuðla að álagsjöfnun. Við höfum trú á því að samstarf við Alor geti veitt mikilvægan stuðning við þessi verkefni,“ segir Símon Einarsson, framkvæmdastjóri Straumlindar.

Alor vinnur að þróun á vistvænum orkugeymslum með rafhlöðum sem munu styðja við verkefni Straumlindar í tengslum þróun lausna við álagsjöfnun, orkunýtingu og sölu á hagkvæmu rafmagni á Íslandi. Í tilkynningunni kemur fram að árafhlöður Alor séu um 95% endurvinnanlegar, með lítið umhverfisfótspor auk þess að vera öruggar í meðhöndlun og flutningi þar sem af þeim stafar hvorki eld- né sprengihætta. Rannsóknir hafa sýnt að endingartími rafhlaðanna er a.m.k. tvöfalt lengri en þekktrar rafhlöðutækni á markaði í dag. Áætlað er að vöruþróunarvinnu á rafhlöðulausnum ljúki undir lok árs 2024.

„Það hefur aldrei verið mikilvægara að nýta framleitt rafmagn sem best og þar spila orkugeymslur lykilhlutverk, þ.e. með því að geyma rafmagn þar til þess er þörf og fletja álagstoppa. Stórar áskoranir kalla á samstarf ólíkra aðila og við teljum að verðmætar lausnir geti skapast með því að leiða saman okkar byltingakenndu rafhlöðutækni og raforkusala sem hefur nýsköpun að leiðarljósi,“ segir Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastýra Alor.

Tengdar fréttir:

Linda Fanney nýr framkvæmdastjóri og stjórnarkona hjá Alor ehf.
Vistvænar orkugeymslur í sjálfbær íbúðarhús
Landsnet, Orka náttúrunnar og Tengill í samstarf við Alor ehf.
Alor tekur þátt í að efla öryggi í fjarskiptum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir