Tilkynning frá lögreglunni á Norðurlandi vestra !!

Spákort kl:6 á fimmtudaginn. Mynd: vedur.is
Spákort kl:6 á fimmtudaginn. Mynd: vedur.is

Varað er við slæmu veðri á Norðurlandi vestra sem og víðast hvar á landinu nk.miðvikudag. Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun fyrir Vestfirði og Norðurland vestra síðla dags og fram á fimmtudagsmorgun. Reikna má með töluverðri ofankomu og ófærð og þá sérstaklega á fjallvegum. Skýrist betur á morgun en eins og er lítur þetta ekkert spennandi út. Ferðalangar eru beðnir að flýta sínum ferðum eða bíða þar til þetta gengur yfir.

Veðurspá fyrir Strandir og Norðurland vestra

Norðan stórhríð (Appelsínugult ástand)

14 okt. kl. 20:00 – 15 okt. kl. 05:00

„Norðan 18-25 m/s, hvassast norðantil. Talsverð eða mikil snjókoma eða slydda með lélegu skyggni og snjó á vegum. Ekkert ferðaveður. Snarpar vindhviður og lausamunir geta fokið"

Eins og gefur að skilja þá veltur þetta á hitastiginu í hvaða formi úrkoman verður. Samkvæmt veðurspá núna (á þriðjudagsmorgni) má reikna með töluverðri snjókomu á Norðvesturlandi aðfaranótt fimmtudags og fram á morgun. Fjallvegir eru líklegir til að lokast. Vonum það besta. /hmj

Fleiri fréttir