Alvarlega slösuð eftir umferðaslys á Hrútafjarðarhálsi

Alvarlegt umferðaslys varð á Hrútafjarðarhálsi.
Alvarlegt umferðaslys varð á Hrútafjarðarhálsi.

Kona á þrítugsaldri slasaðist alvarlega þegar tveir fólksbílar rákust saman á Hrútafjarðarhálsi laust fyrir átta í gærkvöldi. Rúv.is hefur eftir vaktahafandi lækni á bráðamóttöku að konan sé alvarlega slösuð og í lífshættu. Hún var enn í aðgerð á tólfta tímanum í gærkvöldi.

Samkvæmt Rúv.is var nokkur hálka á veginum þegar slysið átti sér stað og við áreksturinn köstuðust báðir bílarnir út af veginum, hvor sínu megin, og um 100 metrar voru á milli þeirra. Klippa þurfti þakið af bíl konunnar til að ná henni út og var hún flutt með sjúkrabifreið að Staðarskála, þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hana og flutti á Landspítalann í Fossvogi. 

Ökumenn voru einir í bílunum og var ökumaður hins bílsins, karlmaður á fertugsaldri, fluttur til athugunar á sjúkrahúsið á Hvammstanga. Hann mun ekki hafa slasast alvarlega. 

 

Fleiri fréttir