Appelsínugul viðvörun tekur gildi kl. 17
„Norðan 18-23 m/s og talsverð snjókoma og skafrenningur með slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður,“ segir í veðurspá Veðurstofunnar fyrir Strandir og Norðurland vestra. Nú hefur appelsínugul veðurviðvörun verið færð framar í tíma og gildir frá því kl. 17 í dag en ekki kl. 20 eins og gert var ráð fyrir í gær.
Hún fellur úr gildi upp úr miðnætti í nótt en þá tekur við gul viðvörun. Snjókomu er spáð fram eftir degi en þegar líður að kvöldi er líklegra að það rigni við ströndina en slydda eða snjókoma inn til landsins. Það má því reikna með vonskuveðri og eins og segir í veðurspá – engu ferðaveðri.
Töluverð ísing myndaðist í nótt eða í morgun og því víðast hvar ansi hált. Þegar umferðarsíða Vegagerðarinnar er skoðuð má segja að hálka sé á öllum vegum og víða éljagangur. Það bætir enn í veður og vind þegar nálgast kaffi.
Færðin á Norðurlandi vestra um kl. 11 í morgun >

