Atvinnuráðgjafar SSNV bjóða fram þjónustu sína

Atvinnuráðgjafar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra bjóða fram þjónustu sína fyrir atvinnurekendur í landshlutanum. Í tilkynningu á vef samtakanna segir að margir atvinnurekendur standi nú frammi fyrir óvissu með rekstur sinn og óvíst um framkvæmd þeirra úrræða sem kynnt hafa verið og  hvað þau þýði fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Atvinnuráðgjafar munu fylgjast grannt með og miðla upplýsingum til fyrirtækja í landshlutanum.

Nokkur góð ráð til atvinnurekenda:

  • Passið upp á heilsuna, bæði andlega og líkamlega. Góður göngutúr eða léttar líkamsæfingar heima við létta lundina og gera okkur gott.
  • Hugið að starfsfólkinu ykkar og gerið það sem þið getið til að viðhalda ráðningarsambandi við það, svo ekki þurfi að ráða nýtt fólk með tilheyrandi kostnaði þegar allt er yfir staðið.
  • Verið í góðu sambandi við ykkar stærstu viðskiptavini og birgja. Góð og opin samskipti eru lykill að því að semja um framhaldið ef þörf verður á því.
  • Fylgist vel með úrræðum stjórnvalda og hvað mun nýtast ykkur í ykkar rekstri. Á heimasíðu SSNV er yfirlit yfir úrræðin sem uppfært er um leið og breytingar verða eða útfærslur skýrast.
  • Leitaðu til atvinnuráðgjafa SSNV til að fá aðstoð við að uppfæra áætlanir, endurskipuleggja reksturinn eða fá ráð varðandi endurfjármögnun þegar sá tími kemur.
  • Nú er hjá mörgum tíminn sem aldrei kemur – þegar róast….nýtum hann í að vinna verkefnin sem við höfum ekki komist í, uppfæra heimasíðuna, vinna markaðsefni, taka til á skrifstofunni, þrífa o.s.frv. Eins og góður maður sagði einu sinni: „Stökktu áhyggjum þínum á flótta með annríki, það er besta lyfið“.

„Atvinnuráðgjafar okkar eru til þjónustu reiðubúnir – endilega heyrið í okkur, bæði ef ykkur vantar aðstoð en líka til að leyfa okkur að fylgjast með hver staðan er svo við getum miðlað sem bestum upplýsingum til stjórnvalda um stöðuna í landshlutanum hverju sinni,“ segir í tilkynningu samtakanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir