Endurnýja þarf umsóknir um húsaleigubætur

Nú á nýju ári þarf að endurnýja allar umsóknir um húsaleigubætur hjá Húnaþingi vestra. Við endurnýjun þarf að fylgja umsókn, staðfest skattframtal 2010 og launaseðlar þriggja síðustu mánaða þeirra sem lögheimili/búsetu eiga í íbúðinni.

Ef breyting hefur orðið á leigusamningi þarf nýr þinglýstur samningur að fylgja. Foreldri barns yngra en 18 ára þarf að staðfesta umsóknina og námsmenn sem hafa framvísað skattframtali ársins 2010 þurfa eingöngu að skila nýrri umsókn og staðfestingu á skólavist

vorannar 2011.

Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Húnaþings vestra, www.hunathing.is eða í Ráðhúsinu að Hvammstangabraut 5 Hvammstanga. Ath! Til að fá bætur greiddar fyrir janúarmánuð þurfa umsóknir að berast fyrir 16. janúar 2011 til félagsþjónustu Húnaþings vestra.

Fleiri fréttir