„Gæti ekki hugsað mér betri stað“ | Þórunn Inga frá Enniskoti í Víðidal segir frá
Síðast heimsóttum við Helgu Hinriks til Moss í Noregi og þar var nú ekki leiðindunum fyrir að fara. En okkur er ekki til setunnar boðið, við vippum bakpokanum á bakið, tékkum á því hvort vegabréfið sé ekki örugglega á vísum stað og dembum okkur í flug til Dúbaí og það á stríðstímum. Auðvitað engin glóra í þessu ferðalagi ef ekki væri fyrir það að við þurfum að taka hús á frænku Helgu, Þórunni Ingu Kristmundsdóttur, frá Enniskoti í Víðidal en þar ólst hún upp með tvíburasystur sinni. Þær eru fæddar árið 1988 og foreldrarnir eru Kristmundur Ingþórsson og Sigrún Herdis Sigurbjartsdóttir.
