Fredrica Fagerlund og Stormur frá Yztafelli sigurvegarar gæðingalistar Meistaradeildar KS

Fredrica Fagerlund og Stormur frá Yztafelli stóðu uppi sem sigurvegarar í gæðingalist á fyrsta keppniskvöldi Meistaradeildar KS þetta árið. Myndir af Facebooksíðu deildarinnar.
Fredrica Fagerlund og Stormur frá Yztafelli stóðu uppi sem sigurvegarar í gæðingalist á fyrsta keppniskvöldi Meistaradeildar KS þetta árið. Myndir af Facebooksíðu deildarinnar.

Sigurvegari gæðingalistar í Meistaradeild KS í gærkvöldi voru Fredrica Fagerlund og Stormur frá Yztafelli en þau keppa með liði Uppsteypu. Á Facebooksíðu Meistaradeildarinnar segir að um glæsilega sýningu hafi verið að ræða og loka einkunn 8,10. Tvö lið, Íbishóll og Uppsteypa, stóðu jöfn með flest stig eftir sýningar kvöldsins en skorið upp úr verðlaunum með sætaröðun knapa. Þar reyndist Íbishóll ofar en bæði lið enduðu með 59 stig.

„Margar frábærar sýningar og gaman að sjá hvað var vel mætt í Reiðhöllina Svaðastaðir. Þökkum bæði fyrir áhorf á staðnum og þeim sem horfðu á Alendis!“ segir í færslu á Facebooksíðu Meistaradeildarinnar.

Úrslit urðu eftirfarandi:

  1. Fredrica Fagerlund Stormur frá Yztafelli 8,10 Uppsteypa
    2. Mette Moe Mannseth Kalsi frá Þúfum 7,67 Þúfur
    3.-4. Védís Huld Sigurðardóttir Hrafnfaxi frá Skeggstöðum 7,53 Íbishóll
    3.4. Þórarinn Eymundsson Þráinn frá Flagbjarnarholti 7,53 Hrímnir
    5. Guðmar Freyr Magnússon Snillingur frá Íbishóli 7,40 Íbishóll

    6. Randi Holaker Þytur frá Skáney 7,27 Uppsteypa
    7. Þórgunnur Þórarinsdóttir Hnjúkur frá Saurbæ 7,13 Hrímnir
    8.-10. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum 7,10 Equinics
    8.-10. Árný Oddbjörg Oddsdóttir Adam frá Reykjavík 7,10 Íbishóll
    8.-10. Gísli Gíslason Trymbill frá Stóra-Ási 7,10 Þúfur
    11. Arnar Máni Sigurjónsson Orka frá Skógarnesi 7,00 Hrímnir
    12. Lea Christine Busch Kaktus frá Þúfum 6,97 Þúfur
    13. Elvar Logi Friðriksson Teningur frá Víðvöllum fremri 6,87 Uppsteypa
    14. Vignir Sigurðsson Stjörnuþoka frá Litlu-Brekku 6,77 Eques
    15. Katla Sif Snorradóttir Logi frá Lundum II 6,70 Dýraspítalinn Lögmannshlíð
    16. Elvar Einarsson Muni frá Syðra-Skörðugili 6,63 Storm Rider
    17. Ásdís Ósk Elvarsdóttir Skúmur frá Skör 6,60 Storm Rider
    18. Þorsteinn Björn Einarsson Fannar frá Hafsteinsstöðum 6,57 Dýraspítalinn Lögmannshlíð
    19. Sigrún Rós Helgadóttir Hagur frá Hofi á Höfðaströnd 6,53 Dýraspítalinn Lögmannshlíð
    20. Finnbogi Bjarnason Leikur frá Sauðárkróki 6,47 Storm Rider
    21. Björg Ingólfsdóttir Kjuði frá Dýrfinnustöðum 6,37 Equinics
    22. Sigurður Heiðar Birgisson Mörk frá Hólum 5,77 Equinics
    23. Guðmundur Karl Tryggvason Hrafnhetta frá Innri-Skeljabrekku 5,57 Eques
    24. Baldvin Ari Guðlaugsson Harpa frá Efri-Rauðalæk 4,70 Eques

        Liðakeppni

          Íbishóll – 59 stig
          Uppsteypa – 59 stig
          Hrímnir – 55 stig
          Þúfur – 55 stig
          Equinics – 23 stig
          Dýraspítalinn Lögmannshlíð – 23 stig
          Storm Rider – 22 stig
          Eques – 14 stig  

Lið Íbishóls fagnaði naumum sigri í liðakeppninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir