Heppinn í Ástum sigraði í Gamanmyndahátíð Flateyrar

Sigurvegarar Gamanmyndahátíðar Flateyrar. Aðsend mynd.
Sigurvegarar Gamanmyndahátíðar Flateyrar. Aðsend mynd.

Gamanmyndahátíð Flateyrar í samstarfi við Reykjavík Foto stóðu fyrir 48 stunda gamamyndakeppni á dögunum, þar sem þátttakendur fengu aðeins 48 klst til að fullvinna stutta gamanmynd með þemanu Heppni/Óheppni. Alls voru á þriðja tug stuttmynda sendar inn í keppnina, þar sem landsmenn gátu horft á þær og kosið sína uppáhalds gamanmynd.

Kosningin stóð yfir á heimasíðu Gamanmyndahátíðarinnar, www.IcelandComedyFilmFestival.com og er hægt að horfa á allar innsendar myndir þar. Það var myndin Heppinn í Ástum eftir þá Árna Þór Guðjónsson, Jón Ólaf Hannesson og Killian G.E Briansson Fitzgibbon sem sigraði kosninguna og hlutu þeir að launum glæsilega Canon myndavél frá Reykjavík Foto.

Allir þátttakendur í 48 stunda gamanmyndakeppninni fengu þar að auku hátíðararmbönd á Gamanmyndahátið Flateyra, sem er án efa fyndnasta kvikmyndahátíð Íslands. Hátíðin í ár fer fram dagana 13.-16. ágúst. Á hátíðinni verður sýndar bæði nýjar og gamlar innlendar og erlendar gamanmyndir í bland við uppistand, leiksýningar, tónleika og fleira.

Hægt er að horfa á sigurmyndina HÉR
Hægt er að horfa á allar myndirnar sem tóku þátt í keppninni HÉR

 

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir