Hestamenn í Húnaþingi halda uppskeruhátíð
Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka V-Hún og Hestamannafélagsins Þyts 2011verður haldin laugardagskvöldið 29. október í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Matur, gleði og gaman. Þessi frábæra skemmtun hefst stundvíslega kl 20:30 en húsið opnar kl 20:00 og það verður sko stemming, segir í tilkynningu frá skemmtinefndinni.
Potturinn á Blönduósi sér um matinn og á boðstólnum verður:
Forréttur
- Grafinn lax - Reyktur lax - Sjávarréttapâté - Sveitapâté
- Pastarami piparskinka
- Meðlæti
- Hunangssinnepssósa - Hvítlauksdressing - Ferskt salat - Fylltar ólífur
- Brauð og smjör
Aðalréttur
- Rosmarinkryddaður lambavöðvi - Hunagnsmarineruð kalkúnabringa - Grísa purusteikt
- Meðlæti
- Rauðvínssósa - Ofnbakaðar kartöflur - Eplasalat - Kartöflusalat
- Rauðlauks-tómatsalat - Rauðkál og baunir - Brauð og smjör ofl.
Veislustjórn verður í höndum söngdívu og fyrrum Selamálaráðherra.
Forsala miða og pantanir fara fram í Söluskálanum á Hvammstanga, í síma 4512465 og þarf að vera lokið að kvöldi miðvikudagsins 26. október, athugið ekki posi.
Miðaverð á uppskeruhátíðina er kr. 6000 matur, skemmtun og ball, en ef þú vilt hins vegar bara skella þér á dansleik í syngjandi sveiflu með Geirmundi, sem hefst kl 00:00, þá kostar það litlar 2500 kr. Enginn posi á staðnum!
Eftirfarandi bú eru tilnefnd ræktunarbú ársins 2010 af Hrossaræktarsamtökum V-Hún.
Gauksmýri - Grafarkot - Lækjamót - Stóra Ásgeirsá - Þóreyjarnúpur
Athugið að það eru allir velkomnir á þessa frábæru skemmtun. Þetta er einstakt tækifæri til að hlæja, gráta og hafa gaman.