Í tilefni Bleika dagsins | Stefanía Hjördís Leifsdóttir skrifar
Í Bleikum október langar mig að minna á mikilvægi þess að fara í reglulega skimun, fylgjast með breytingum á líkamanum og hlusta á eigið innsæi ef maður hefur á tilfinningunnini að eitthvað sé að. Í mínu tilfelli fann ég ekki hnút í brjóstinu heldur verk, ekki var talin þörf á nánari rannsókn og hálft ár leið þar til krabbameinið kom í ljós við hefðbundna skimum. Einskær heppni var að krabbameinið var ekki búið að dreifa sér. Þar getur skilið milli feigs og ófeigs.
Það er skrítið að hugsa til þess að nú sé liðið rúmt ár frá því að meðferðin mín hófst. Maður býst ekki við því að verða allt í einu farþegi í ferðalagi sem maður valdi sér ekki og veit ekki hvernig endar. Þetta ferðalag hefur kennt mér ótal margt. Til dæmis staðreyndir um krabbamein sem ég hafði ekki gert mér grein fyrir. Það eru til margar gerðir af brjóstakrabbameini og meðferðir við þeim óíkar og einstaklingsbundnar. Meðferðin tekur fljótt yfir allt lífið og hefur áhrif á orku, svefn, úthald, matarlyst og alla líðan. Aukaverkanir krabbameinslyfjanna voru fleiri og alvarlegri en ég hafði gert mér grein fyrir en mjög einstaklingsbundnar. Ég þurfti t.d. að hætta fyrr en ætlað var að fá inngjafir af erfiðasta lyfinu sem eyðir öllum hraðvaxta frumum, ekki einungis krabbameinsfrumum. Taugaendar í höndum og fótum skemmast og það tekur langan tíma að ganga til baka ef það þá gerist.
Að missa hárið í marga mánuði og þekkja ekki sjálfan sig í spegli er skrítin lífsreynsla. En heilt yfir verður maður að kynnast alveg nýjum líkama og kemur sér upp verkfærakistu bjargráða til að takast á við hversdaginn. Þar skiptir þrautseigja og jákvæðni miklu máli.
Það sem er kannski erfiðast fyrir mig að sætta mig við er að þetta ferli tekur mjög langan tíma og ég glími enn þá við mikla örmögnun, einhverja aðra tegund af þreytu þar sem líkaminn bókstaflega getur ekki meir. Það eru líka mikil vonbrigði að lyf sem ég þarf að vera á næstu árin til að reyna að hindra endurkomu krabbans valda mér mjög miklum aukaverkunum og skerðingu á lífsgæðum. Ekki búið að finna út úr því enn þá.
En þrátt fyrir þetta er það þakklæti sem stendur uppúr eftir þetta ár, ekki sjálfsvorkunn, hún er mér fjarri. Þakklæti fyrir að krabbinn greindist í tíma, framfarirnar í meðferð sem líklega bjarga lífi mínu, fyrir fólkið mitt og alla hlýjuna og hjálpsemi fólks í kringum mig. Þakklátust er ég fyrir alla venjulegu dagana sem maður tók áður sem sjálfsögðum hlut. Forgangsröðunin verður sannarlega skírari, maður lærir að eyða ekki orku í það sem skiptir litlu máli.
Eg veit ekki nákvæmlega hvernig næsti kafli verður, ég velti því mikið fyrir mér. Í fyrsta skipti í lífinu er ég til í að hægja á og njóta, vona að ég gleymi mér ekki ef heilsan eflist á ný
Þetta ár hefur barátta elsku Ólafar systur minnar við sitt krabbamein eðlilega verið mér mjög hugleikin. Mig dreymir hana oft og dáist enn meira að æðruleysi hennar og kjarki og óbilandi jákvæðni í þeirri óvægu baráttu sem henni var úthlutað. Mig langar að setja hlekk á viðtal við hana sem Freyr Rögnvaldsson frændi okkar tók og sem birt var í Stundinni einungis örfáum mánuðum fyrir dauða hennar þar sem hún lýsir þessu magnaða lífsviðhorfi sínu svo vel. Sjá hér >
Stefanía Hjördís Leifsdóttir
