Loksins er hægt að halda Háskóladaginn á hefðbundinn hátt

Háskóladagurinn 2023 verður haldinn 4. mars nk. milli kl. 12:00 og 15:00 þar sem allir háskólar landsins munu kynna starfsemi sína. Dagurinn fer fram í húsakynnum Háskólans í Reykjavík, Listaháskóla Íslands, Háskóla Íslands og Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýrinni.

Í tilkynningu til fjölmiðla kemur fram að nemendur, kennarar og starfsfólk háskólanna muni taka á móti gestum og gangandi og fræða fólk um starfsemi og þjónustu sem í boði er. Hægt verður að fara í opna tíma í hinum ýmsu greinum sem og að skoða og prufa ýmis verkefni sem lögð eru fyrir nemendur.
Sú nýbreytni er í ár að nú verða skólarnir með kynningu í Grósku hugmyndahúsi.

Á haskoladagurinn.is eru saman komnar upplýsingar um allt grunnnám háskólanna. Þar er öflug leitarvél sem aðstoðar fólk við að finna sér áhugavert nám, einnig má finna upplýsingar um hvern skóla fyrir sig og dagskrá háskólanna á Háskóladaginn.

Háskólinn á Akureyri kynnir nám sitt í Grósku hugmyndahúsi.
Háskólinn á Hólum kynnir nám sitt í Grósku hugmyndahúsi.
Háskólinn á Bifröst kynnir nám sitt á Háskólatorgi Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík.
Landbúnaðarháskóli Íslands kynnir nám sitt í Grósku hugmyndahúsi, Listaháskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík.
Háskóli Íslands kynnir nám sitt á Háskólatorgi, Grósku hugmyndahúsi, Öskju og Aðalbyggingu.
Háskólinn í Reykjavík kynnir nám sitt í Háskólanum í Reykjavík og háskólatorgi Háskóla Íslands.
Listaháskóli Íslands kynnir nám sitt í Listaháskólanum, Háskólatorgi Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík.

Eins og fyrri ár verður Háskóladagurinn einnig haldin á Akureyri þann 9. mars milli kl 11:00 til 14:00 í Háskólanum á Akureyri. Þar munu allir háskólar landsins einnig kynna starfsemi sína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir