Mikil heitavatnsnotkun á árinu 2015 í Húnaþingi vestra
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
16.01.2016
kl. 08.34
Í tilkynningu frá Hitaveitu Húnaþings vestra segir að við reglulegan álestur á hitaveitumælum hafi komið í ljós mikil almenn heitavatnsnotkun á árinu 2015.
Í tilkynningunni er notendum bent á að fara yfir stillingu á ofnum, skoða ofnloka, inntakssigti og hitastig á útrennslismæli. Eins sé mjög gott að fylgjast með daglegri notkun rennslis á hitaveitumæli.
Heimild: Húnaþing.is
