Páll Óskar heimsækir grunnskólana á Skúnaskralli
Barnamenningarhátíð Norðurlands vestra, Skúnaskrall – Öll saman, hefst með pompi og prakt 21. október og stendur til 4. nóvember. Meðal viðburða eru hrekkjavökuböll á Hofsósi og Blönduósi, stuttmyndir frá UngRIFF í leik- og grunnskólum, Umskiptingar sýna leikritið um Fóu og Fóu feykirófu en síðast en alls ekki síst þá mun Páll Óskar heimsækja alla grunnskóla landshlutans og syngja fyrir nemendur.
Hrekkjavökuball á Hofsósi er fyrir unglingastig allra sex grunnskólanna, í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Friðar. Þar koma fram Spritezeroclan og Úlfur Úlfur. Hrekkjavökuball á Blönduósi er fyrir miðstig. Ballið, sem er í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins, fær DJ Sakka og Partývélina til að halda uppi stuðinu.
Á Skúnaskralli verða einnig í boði bæði dans- og leiklistarnámskeið, ritunarsmiðjur, myndlistarsýningar og námskeið í Fab Lab. Þá verður mikið um að vera á bókasöfnum svæðisins.
Nánari upplýsingar og dagskrá munu birtast á skunaskrall.is. Vakin er athygli á því að skráning er nauðsynleg á suma viðburðina vegna fjöldatakmarkana.
Sveitarfélögin á Norðurlandi vestra hvetja fjölskyldur til að kynna sér dagskrána og taka þátt í viðburðum hátíðarinnar sem opnir erum öllum
Hátíðin er samstarfsverkefni allra sveitarfélaganna í landshlutanum og eitt af áhersluverkefnum SSNV. Gaman er að segja frá því að hún hlaut veglegan styrk úr Barnamenningarsjóði og nýtur auk þess stuðnings Samfélagssjóðs Landsvirkjunar.

