Skúnaskrall – Öll saman
Barnamenningarhátíð Norðurlands vestra öðru nafni Skúnaskrall hófst í dag og verður mikið um dýrðir. Hátíðin er samstarfsverkefni allra sveitarfélaganna í landshlutanum og eitt af áhersluverkefnum SSNV. Hún hlaut veglegan styrk úr Barnamenningarsjóði og nýtur auk þess stuðnings Samfélagssjóðs Landsvirkjunar.
Meðal viðburða má nefna:
Páll Óskar heimsækir alla grunnskóla landshlutans og syngur fyrir nemendur. Páll er einmitt í Skagafirði í dag og hefur ferðast milli skóla og meðal annars flutt og sagt frá tilurð lagsins, Eitt af Blómunum, sem má segja að sé orðinn hálfgerður þjóðsöngur.
Hrekkjavökuball á Hofsósi fyrir unglingastig allra sex grunnskólanna, í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Friðar. Þar koma fram Spritezeroclan og Úlfur Úlfur.
Hrekkjavökuball á Blönduósi fyrir miðstig allra grunnskólanna sex. Á ballinu, sem er í umsjón félagsmiðstöðvarinnar Skjólsins, munu DJ Sakki og Partývélin halda uppi stuðinu.
Stuttmyndir frá UngRIFF í leik- og grunnskólum.
Umskiptingar sýna leikritið um Fóu og Fóu feykirófu.
Einnig verða í boði bæði dans- og leiklistarnámskeið, ritunar- og sköpunarsmiðjur, myndlistarsýningar og námskeið í Fab Lab, auk þess sem mikið verður um að vera á bókasöfnum svæðisins, svo nokkur dæmi séu tekin.
Nánari upplýsingar munu birtast jafnt og þétt á skunaskrall.is. Rétt er að benda á að skráning er nauðsynleg á suma viðburðina vegna fjöldatakmarkana.
Eru íbúar landshlutans hvattir til að fylgjast vel með og vera duglegir að nýta sér þá viðburði sem opnir eru öllum. /hmj
