Smáframleiðendur gegna mikilvægu hlutverki

Frá málþiinginu sem fram fór þann 19. apríl síðastliðinn. MYND AF SSNV.IS
Frá málþiinginu sem fram fór þann 19. apríl síðastliðinn. MYND AF SSNV.IS

Fín mæting var á málþing um stöðu smáframleiðenda sem haldið var nýverið, þar sem fjölbreyttur hópur þátttakenda kom saman til að ræða stöðu greinarinnar, helstu áskoranir og þau tækifæri sem felast í öflugri smáframleiðslu víða um land. Málþingsstjóri var Hlédís Sveinsdóttir.

Í frétt á vef SSNV segir að á dagskránni voru erindi sem fjölluðu m.a. um „...stöðu smáframleiðenda í dag, reynslu af vettvangi, regluverk og eftirlit, gæðamál, fræðslu, lífræna framleiðslu og tengsl smáframleiðenda við smásölu og veitingageirann. Erindin voru fróðleg og umræðurnar líflegar og málefnalegar.

Í umræðum dagsins kom skýrt fram að smáframleiðendur gegna mikilvægu hlutverki í íslenskri matvælaframleiðslu, ekki síst á landsbyggðinni. Jafnframt var rætt um mikilvægi þess að einfalda regluverk, auka skýrleika í leiðbeiningum og styðja betur við rekstrarumhverfi smærri framleiðenda. Þá var einnig lögð áhersla á gildi fræðslu, samvinnu og hagnýtra lausna sem geta stutt við þróun greinarinnar til framtíðar.

Málþingið heppnaðist afar vel og sýndi glöggt þann kraft, áhuga og þekkingu sem er til staðar í kringum smáframleiðslu. Með góðri mætingu og öflugri þátttöku skapaðist mikilvægur vettvangur til samtals um framtíð greinarinnar og hvernig megi efla hana enn frekar.“

Fleiri fréttir