Sprotafyrirtæki skipa sér í forystu á alþjóðavísu í umhverfismálum, Alor þar á meðal

Sjö framúrskarandi og fjölbreytt sprotafyrirtæki hafa verið valin til þátttöku í Hringiðu 2023. Aðsend mynd.
Sjö framúrskarandi og fjölbreytt sprotafyrirtæki hafa verið valin til þátttöku í Hringiðu 2023. Aðsend mynd.

Yfirferð umsókna var í höndum stýrihóps, sem er samsettur úr fulltrúum bakhjarla og samstarfsaðila Hringiðu. Í hópnum er reynslumikið fólk úr atvinnu- og viðskiptalífinu sem starfar við eflingu hringrásarhagkerfisins og grænna lausna. Leitast var eftir fjölbreyttum og efnilegum teymum til að takast á við áskoranir í loftslagsmálum með hringrásarhagkerfið að leiðarljósi.

Umræðan um hringrásarhagkerfið hefur verið í brennidepli undanfarin ár og verður sífellt meira áríðandi með hverju árinu sem líður. Hringiða er þarft verkefni í þeirri umræðu og hefur á stuttum tíma náð að festa sig í sessi sem bjargráð til að auðvelda sprotafyrirtækjum að draga fram og þróa lausnir við áskorunum tengdum loftslagsmálum og skipa sér í forystu á alþjóðavísu í umhverfismálum.

Hringiða byggir á alþjóðlegri fyrirmynd og er um að ræða sannreynt ferli þar sem sprotafyrirtækjum er veittur aðgangur að markvissri þjálfun og breiðu tengslaneti sérfræðinga úr atvinnulífinu. Haft er eftir Kolfinnu Kristínardóttur, verkefnastjóra Hringiðu, “Hraðallinn er öflugur samstarfsvettvangur hringrásarfyrirtækja á Íslandi sem gefur einstaklingum tækifæri á að kynnast öðru fólki sem hefur áhuga og starfa innan hringrásarhagkerfisins. Þátttakendur Hringiðu öðlast þannig breitt tengslanet leiðbeinenda úr atvinnulífinu auk þess að verða í lokin í stakk búin að sækja um styrki í Evrópusjóði, svo sem LIFE og Horizon Europe.”

Sprotafyrirtækin sem taka þátt í Hringiðu eru eftirfarandi:

Mar Eco
Mar Eco stendur fyrir Marine Ecolocial Solutions en markmiðið er að vinna að umhverfisvænum lausnum í framleiðslu og notkun veiðarfæra. Notast er við endurunnið plastrusl úr sjó sem styður við bláa hagkerfið og umhverfisvænar veiðar. 

Melta
Melta býður upp á hringrásarþjónustu og framleiðslu á lífrænum áburði úr lífúrgangi í dreifbýlum og sveitarfélögum.

Orb
Orb þróar tækni til að mæla kolefnisbindingu skóga á ódýran og aðgengilegan hátt til að stuðla að ábyrgri kolefnisjöfnun og framleiðslu vottaðra kolefniseininga.

Resea Energy
Resea Energy er rannsóknar- og þróunarfyrirtæki sem stefnir á framleiðslu á lífeldsneyti úr hrati frá ræktuðu þangi.

Alor
Alor vinnur að þróun og framleiðslu á umhverfisvænum álrafhlöðum og orkugeymslum af mismunandi stærðum þ.e. frá litlum rafhlöðum og rafgeymum yfir í stórar orkugeymslur í gámastærðum.

Feykir hefur flutt fréttir af Alor undanfarin misseri en það fyrirtæki hefur sterk tengsl í Skagafjörð. Linda Fanney Valgeirsdóttir, frá Vatni á Höfðaströnd, er framkvæmdastýra Alor en faðir hennar Valgeir Þorvaldson er einn stofnanda fyrirtækisins og stjórnarformaður.

Bambahús
Bambahús eru gróðurhús sem stuðlar að eflingu hringrásarhagkerfisins þar sem endurnýttar eru vökvaumbúðir sem annars væru fluttar úr landi og urðaðar. Húsin eru létt, traust, fyrnasterk og sérhönnuð með íslenskt veðurfar í huga.

Munasafn RVK Tool Library
Hringrásarsafnið veitir samfélögum sanngjarnan og fjárhagslegan aðgang að tólum og öðrum munum.

Umsjón með hraðlinum er í höndum KLAK sem hefur til fjölda ára veitt aðstoð við þróun viðskiptahugmynda og leitt saman hóp hagaðila með verðmætasköpun að leiðarljósi. Bakhjarlar Hringiðu eru Reykjavíkurborg, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir, Terra, Ölgerðin og Samtök iðnaðarins. Samstarfsaðilar Hringiðu eru Rannís, Breið þróunarfélag, Evris, Sjávarklasinn, Grænvangur og Orkuklasinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir