Svavar Knútur með tónleika í Bjarmanesi

Menningarmiðja Norðurlands stendur fyrir tónleikum með Svavari Knúti í Bjarmanesi á Skagaströnd annað kvöld 3. mars klukkan 20:30. „Hugljúfa söngvaskáldið syngur fyrir okkur blöndu af frumsömdu og sígildum lögum ásamt einstökumm furðusögum,“ segir í tilkynningu Menningarmiðjunnar.

Húsið opnar kl. 19:30, 2000 kr. inn, enginn posi. „Hið ofurhuggulega menningar-og samveruhús Bjarmanes tekur á móti þér á föstudaginn n.k. með hinum frábæra Svavari Knúti. Ekki láta þig vanta og taktu einhvern með þér,“ segir á Facebook-síðu Mennigarmiðju Norðurlands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir