Sýnikennsla í Þytsheimum

Félag tamningamanna og fræðslunefnd Þyts standa í sameiningu fyrir námskeiði í reiðmennsku þar sem reiðkennararnir Ísólfur Líndal og Guðmar Þór ásamt reiðkennaraefninu James Faulkner verða með sýnikennslu í reiðhöllinni á Hvammstanga fimmtudaginn 27. janúar kl. 20:30.

Fjallað verður m.a. um notkun reiðhalla og kerfisbundna uppbyggingu reiðhestsins.

Aðgangseyrir kr. 1.000. sem greiðist með beinhörðum peningum þar sem enginn posi verður á staðnum.

Fleiri fréttir