Þrettándagleði Þyts á morgun
Laugardaginn 8. janúar nk. verður þrettándagleði Þyts 2011 haldin ef veður leyfir. Farið verður frá Söluskálanum á Hvammstanga kl: 14:00 þar sem álfakóngur, álfadrottning, hirðmeyjar ásamt Grýlu, Leppalúða og þeim jólasveinum sem fengu lengra dvalarleyfi, leiða gönguna í gegnum bæinn með viðkomu á sjúkrahúsinu og þaðan sem leið liggur að reiðhöllinni Þytsheimum.
Í Þytsheimum munu jólasveinar, Grýla og Leppalúði syngja og tralla með gestum og verður börnunum boðið á hestbak. Einnig verður boðið upp á söng sem Valdi, Guðrún Ósk, Logi, Hulda, Brynja, Hrafnhildur og Sigrún munu sjá um og Elínborg sér um undirspil. Boðið verður upp á kaffi, kakó og meðlæti.
Athygli er vakin á því að ef veðurútlit verður slæmt þá gæti dagskráin breyst eitthvað