Vetrarveður framundan
Veðurspekingar reikna með norðvestanátt og snjókomu í lok vikunnar. Það er gert ráð fyrir frosttölum svo langt sem spár ná. Veðrið helst skaplegt í dag en það byrjar væntanlega að élja hér á Norðurlandi vestra um hádegi á fimmtudag og bætir svo aðeins í föstudag og laugardag en mestri úrkomu er spáð á sunnudag. Reyndar verður þetta væntanlega ekki eintóm snjókoma því í bland verður boðið upp á slyddu og rigningu.
Ekki er nú reiknað með vonskuveðri þessa daga en þó má reikna með því að seinni part föstudags verði skörp norðvestanaátt – allt að 20 m/sek – og hríð en svo rigning um kvöldið. Skaplegt veður þegar líður á næstu viku en það getur nú margt gerst þangað til.
Þegar þessi frétt er skrifuð eru vegir vel færir á Norðurlandi vestra en þó hálkublettir á Þverárfjallsvegi og á Vatnsskarði en á Þverárfjalli og í Langadal er éljagangur.
Það hefur svo sem ekki verið hægt að barma sér mikið yfir veðurofsa þetta haustið. Örfáar haustlægðir hafa rennt sér yfir landið og stráð yfir okkur rigningu og roki en alla jafna hefur þetta tekið fljótt af.
