Ýmsar kynjaverur á Þrettándagleði Þyts

Góð þátttaka var í Þrettándagleði Þyts s.l. laugardag á Hvammstanga. Riðið og gengið var frá sjoppunni, stoppað við sjúkrahúsið og þar sungin nokkur lög. Þaðan var farið upp í Þytsheima þar sem var sungið og trallað.

Jólasveinar og fleiri kynjaverur léku á alls oddi, foreldrar í æskulýðsstarfi Þyts reiddu fram dýrindis veitingar sem fólki var boðið upp á. Svo sungu nokkrir úrvals söngvarar úr sveitarfélaginu fyrir gesti, við undirleik snilldar tónlistarmanna. 
Myndir af hátíðinni er hægt að nálgast HÉR

/Þytur.is

Fleiri fréttir