Að kveikja á eigin krafti – Að mæta streitu og kvíða með uppbyggjandi leiðum

20. október kl. 17:00-19:00 Hvað er að gerast Vefnámskeið
20 okt

Farskólinn kynnir - Að kveikja á eigin krafti.

Námskeið sem byggir á grunni lífsþjálfunar með það að markmiði að þátttakendur öðlist fleiri hagnýt verkfæri til að bregðast við streituvaldandi aðstæðum og kvíðavaldandi hugsunum.

Ávinningur:

  • Að auka skilning á eðli streitu og kvíða
  • Að auka meðvitund um streitu- og kvíðavaldandi hugsanir
  • Að kynnast valdeflandi leiðum til að virkja innri styrk og draga úr streitu og kvíða
  • Að byggja upp seiglu og ró með hugsanastjórnun

Leiðbeinandi: Huld Aðalbjarnardóttir, lífsþjálfi.

Skráning er hér

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.