13. október kl. 17:00-18:30Hvað er að gerastVefnámskeið
13okt
Vefnámskeið
Á námskeiðinu verður farið yfir grunnatriði í tjáningu og framkomu. Þeir sem taka þátt fá þjálfun í að tjá sig af öryggi og sjálfstrausti. Á námskeiðinu lærir þú: Hvernig þú getur tjáð þig af meira öryggi og sjálfstrausti. Hver rétt er að byggja upp framsögu. Aðferðir til að draga úr “sviðskrekk” og byggja upp sterka líkamstjáningu.
Námskeið fyrir alla sem vilja bæta sig í tjáningu og framkomu.
*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi
Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér
og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer.
En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til þín.
Á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga þann 8. október 2026 lagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um lítil hjúkrunarheimili með 10–12 íbúum. Þetta eru mikilvæg orð sem ber að fagna. En þau vekja jafnframt áleitnar spurningar um framtíð þessara heimila þegar heilbrigðisstofnanir landsins standa frammi fyrir miklum kröfum um niðurskurð og hagræðingu.
Lóa Travel og Selasetur Íslands vinna nú að þróun á stafrænni miðlun upplýsinga um Vatnsnes, ásamt því að hanna og bjóða upp á samsettar hópaferðir á svæðinu. Verkefnið hlaut nýverið styrk úr evrópska PHOENIX 4.0 verkefninu, sem m.a. er stýrt af Íslenska ferðaklasanum.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Þá er það Ingi Sigþór Gunnarsson sem teikar Tón-lystar-vagninn að þessu sinni. Það er reyndar bannað að teika og því ekki til eftirbreytni. Ingi Sigþór býr í Fellstúninu á Króknum, er árgangur 2000 sem er auðvitað mjög þægilegt ef menn þurfa að gefa upp aldur – svo lengi sem menn vita hvað ár er. „Ég er alfarið alinn upp á Króknum og er sonur Elvu Bjarkar Guðmundsdóttur og Gunnars Braga Sveinssonar,“ segir Ingi. „Ég kann eitthvað smá á gítar en annars treysti ég mest á röddina sem og kunn-áttu mína á hljóðvinnsluforrit.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.