Deiliskipulagstillaga fyrir Skagfirðingabraut 26 Sauðárkróki auglýst

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 54. fundi sínum þann 14. október 2026 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir Skagfirðingabraut 26, Sauðárkróki. Um er að ræða lóð þar sem væntanleg viðbygging verknámshúss mun rýsa. Deiliskipulagstillagan er auglýst frá 21. október 2026 til og með 4. desember 2026.

Deiliskipulagstillagan er sett fram á uppdrætti ásamt greinargerð nr. DS-01, verknúmer 56293200, dags. 21.09.2026, unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni. Skipulagsuppdrátturinn sýnir fyrirhugaða uppbyggingu skólasvæðis Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra (FNV) innan skipulagssvæðisins, aðkomu inn á lóðina, byggingarreiti, bílastæði og helstu skilmála.

Hægt er að skoða deiliskipulagstillöguna í Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerinu 1413/2025. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is. Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillöguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 1413/2025 í síðasta lagi 20.nóvember 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is.

Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.

 

Fleiri fréttir