Hálkan leynist víða og vissara að fara varlega
Vegfarendur á Norðurlandi vestra þurfa að hafa varann á sér þar sem víða er töluverð hálka og ekki gott að sjá hana – mögulega svokallaður svartís. Þannig er til að mynda mjög hált á Sauðárkróksbraut milli Varmahlíðar og Sauðárkróks og á Sauðárkróki og sömuleiðis er varað við hálku á Öxnadalsheiði. Þegar þetta er skrifað er unnið að mokstri á Þverárfjallsvegi en skaplegra færi er í Húnavatnssýslum þó þar megi eiga von á hálkublettum.
Eflaust gufar hálkan upp þegar líður á morguninn og sól hækkar á lofti en það er þó ekki fyrr en um hádegi sem reikna má með að hitinn hysji upp um sig og smelli í 3-5 gráður. Annars virðist spáin næstu daga og jafnvel fram í næstu viku gera ráð fyrir svipuðu veðri og nú er; stillt og kalt fram eftir morgni og hlýnar þegar líður á daginn. Ekki er gert ráð fyrir úrkomu fyrr en á sunnudag og mánudag og þá ýmist í snjókomu eða rigningu og þá heldur öflugri inn til landsins.
