Aðventuhátíð á Löngumýri
Aðventuhátíð verður á Löngumýri annan sunnudag í aðventu, 7. desember kl. 14.
Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls syngur aðventu- og jólasálma undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar. Hugvekju flytur Lydia Einarsdóttir. Fermingarbörn lesa ritningarlestra og bænir. Við syngjum saman jólalögin úr sunnudagaskólanum.
Kaffi og veitingar eftir stundina.
Verið hjartanlega velkomin.
Sr. Halla Rut Stefánsdóttir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.