Hugum að heilanum – bætt hugarstarf og heilaheilsa
12. nóvember kl. 17:00-19:00Hvað er að gerastVefnámskeið
12nóv
Farskólinn kynnir námskeiðið - Hugum að heilanum
Áhersla á heilaheilsu verður sífellt meiri og sýna rannsóknir að lífsstílstengdir þættir sem og fjölbreytt hugarþjálfun skipta sköpum þegar viðhalda á góðri heilaheilsu út lífið. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja fræðast um heilann, heilaheilsu og leiðir til að efla hugarstarf.
Leiðbeinandi: Dr. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði og eigandi Heilaheilsu.
*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.
Sýning fór fram í Hillebrandtshúsi í Gamla bænum í Blönduósi og veitti gestum innsýn í skapandi samtal sem myndaðist þegar alþjóðlegir listamenn kynntu sér landslag, menningu og textílhefðir Íslands. Hver listamaður setti fram einstakt sjónarhorn og skoðaði hugtök eins og sjálfsmynd, ferli og stað í gegnum efni, vefnað og tilraunir með textíl.
Ég las um helgina að árið 2025 væri Kvennaár. Ég verð að viðurkenna að ég var svolítið hissa á þessu því einhvern veginn hafði þetta alveg farið fram hjá mér. Nú má vera að ég hafi heyrt þetta en ekki meðtekið skilaboðin, við karlangarnir eigum það víst til.
Við minntumst þess á dögunum að hálf öld var liðin frá því að efnahagslögsaga Íslands var færð út í 200 mílur af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins undir forystu Geirs Hallgrímssonar, þáverandi forsætisráðherra. „Það er engum blöðum um það að fletta að ákvörðun íslenskra stjórnvalda fyrir hálfri öld síðan, sem tekin var einhliða, var stórhuga og framsækin enda var Ísland á meðal fyrstu þjóða heims til þess að færa landhelgina út í 200 mílur,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra réttilega í grein sem hún ritaði á Vísi vegna tímamótanna.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Trommarinn Kristján Kristjánsson fæddist á Siglufirði árið 1973 líkt og tvíburabróðir hans Kristinn, nema Kiddi spilar á bassa. Fjölskyldan flutti á Krókinn þegar Stjáni var níu ára og telur hann sig því meiri Króksara en Siglfirðing (!). „Ég er sonur Jóninnu Hjartardóttur hundaræktanda í Hveragerði og Kristjáns Óla Jónssonar, fyrrverandi lögregluvarðstjóra í Lögreglunni á Sauðárkróki, eða Roy eins og hann er kallaður á stöðinni. Ég spilaði á pottana hjá mömmu frá því að ég man eftir mér en færði mig svo yfir í alvöru trommur og slagverk ýmisskonar þegar ég áttaði mig á því að það væri engin framtíð í því að spila á potta endalaust með prjónunum hennar móður minnar,“ segir Stjáni sem nú hamrar húðir og járn hjá Geirmundi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.