Konur fjárfestum á Sauðárkróki
Langar þig að læra fyrstu skrefin í fjárfestingum eða að stofna fyrirtæki?
Þá er tækifærið núna því Arion mun halda Konur fjárfestum fræðsluviðburð á Gránu, Sauðárkróki, föstudaginn 23. maí kl. 17:00. Farið verður yfir grunnatriði í fjárfestingum og praktísku atriðin um stofnun fyrirtækja.
Snædís Ögn Flosadóttir opnar viðburðinn og segir okkur stuttlega frá átaksverkefninu „Konur fjárfestum“ sem Arion setti á laggirnar í byrjun árs 2024. Síðan mun hún leiða okkur í gegnum grunnatriði í fjárfestingum, lykilhugtök og hvernig byrja á að fjárfesta í sjóðum, hlutabréfum og skuldabréfum.
Helga Sigurrós Valgeirsdóttir fer síðan yfir praktísku atriðin um hvernig þú stofnar fyrirtæki og mikilvægi trygginga í fyrirtækjarekstri.
Boðið verður upp á léttar veitingar fyrir fundinn.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.