Sýnd verður myndin LILO & STITCH í Króksbíói kl. 13:00. Einmana havaísk stúlka vingast við geimveru sem hlaupið hefur á brott og hjálpar henni að sameina sundraða fjölskyldu sína.
Félagar í Rótarýklúbbi Sauðárkróks komu færandi hendi í heimsókn í aðsetur sjúkraþjálfunar og endurhæfingar HSN á Sauðárkróki þann 21. maí síðastliðinn. Það er markmið félaga að láta gott af sér leiða sem víðast í samfélaginu. Gjöfin í ár eru þrjú þrekhjól, hugsuð fyrir alla þá fjölmörgu einstaklinga sem njóta þjálfunar og endurhæfingar hjá stofnuninni.
Erlend fjárfestingarfyrirtæki sækja stíft að fá að reisa Vindmyllugarða á Íslandi. Þarna eru meðal annars á ferðinni erlendir einkafjárfestar sem vilja mjólka verðmæti og arð út úr raforkuframleiðslu á Íslandi og umbreyta þar með íslenskri náttúru með alvarlegum afleiðingum. Fram hefur komið að sótt hefur verið um að reisa vindmyllugarða á yfir 40 stöðum á landinu.
Hin árlega sumarhátíð leikskólans Ársala á Sauðárkróki fór fram í gær. Mikið var um dýrðir þar sem grillaðar voru pylsur, andlit máluð í öllum regnbogans litum og hægt að bregða sér á hestbak. Góð mæting var á hátíðina og allir í sólskinsskapi þó hitaskúr hafi skolað himininn um tíma.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
„Fanney Birta Þorgilsdóttir heiti ég og bý í Síðu á Hofsósi með Fandam kærasta mínum og Ísak Abdiqani, sjö mánaða stráknum okkar. Fanney Birta, sem er fædd árið 1996, ólst upp á Hofsósi. Pabbi minn heitir Þorgils Heiðar Pálsson og er frá Eyrarlandi í Deildardal og mamma mín heitir Harpa Kristinsdóttir og er fædd á Dalvík en hefur búið á Hofsósi meira og minna allt sitt líf. Ég á fjögur systkini og tvær yndislegar stjúpsystur. Stórfjölskylda!“ Þannig er nú það en hvaða erindi á Fanney Birta í að svara Tón-lystinni?
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.