Miðaldaveisla á Hólum
Sunnudaginn 15. mars verður haldið upp á Gvendardaginn á Hólum.
Messa kl. 17 og veisla kl. 18 þar sem miðaldamatur verður á borðum.
Austan Vatna sér um matseldina, en matseðilinn hannar Nanna Rögnvaldardóttir,
rithöfundur og matgæðingur, sem fjallar einnig um veislur og veitingar, krydd og kræsingar á miðöldum. Maturinn kostar 4.000 kr. á mann og þarf að skrá sig á netfangið gisligunn@simnet.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.