12. mars kl. 18:00-20:00Hvað er að gerastVefnámskeið
12mar
Streita, kulnun eða sjúkleg streita. Þátttakendur fá verkfæri til að greina streitu og læra aðferðir henni til forvarnar og úrlausna. Kynnt verða ný hugtök úr streitufræðum eins og til að mynda daghvíld á vinnustað. Farið verður í viðurkenndar aðferðir sem stuðla að slökun á vinnutíma.
Leiðbeinandi:HelgaHrönn Óladóttir,mannauðsfræðingur og streituráðgjafi. Heilsuvernd
Vefnámskeið
Hvar og hvenær: 12. mars klukkan 18:00-20:00
Verð: 23.900 kr
*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi
Þann 16. júlí 2009 sendi Ísland Evrópusambandinu umsókn um aðild að sambandinu. Umsóknin var lögð fram á grundvelli 49. greinar sáttmálans um Evrópusambandið.
Kirkjukvöld Kirkjukórs Sauðárkróks fór fram í gærkvöldi eins og vikið er að hér á síðunni. Það var Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrum prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, sem var ræðumaður kvöldsins. Ræðan, sem fjallaði um Laxness og stríð, vakti töluverða athygli og hefur örugglega – og vonandi – vakið fólk til umhugsunar. Feykir fékk góðfúslegt leyfi hjá Eiríki að birta textann.
Lífið er miklu skemmtilegra þegar glasið er hálffullt frekar en hálftómt. Þegar við veljum að sjá tækifærin frekar en hindranirnar, þegar við hrósum frekar en gagnrýnum, þegar við horfum fram á veginn í stað þess að líta um öxl - þá gerist eitthvað merkilegt. Fólkið í kringum okkur fer að gera slíkt hið sama.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Að þessu sinni er það nokkuð síðbúin Jóla-Tón-lyst sem ber fyrir augu lesenda Feykis en það er Ragnar Þór Jónsson, þingeyskur gítarleikari með heimilisfang á Hofsósi, sem tjáir sig um tónlistina. Ragnar, sem er fæddur 1966, ólst upp í Aðaldal og bjó síðan í 30 ár á Húsavík. Fyrir nokkrum árum kynntist hann síðan Dagmar Ásdísi Þorvaldsdóttur og flutti í framhaldi af því á Hofsós.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.